Myndir úr safninu
Álfar
Tröll
Norđurljós
Jólasveinar
Ţjóđfrćđimiđstöđ
Gestabók




Upplifið heimkynni álfa og trölla og sjáið norðurljósin í allri sinni dýrð

Icelandic Wonders er um 1.200 fermetra safn tileinkað álfum, tröllum og norðurljósum. Safn þetta er staðsett á Stokkseyri sem er í um 70 km fjarlægð frá Reykjavík (ca. klst akstur). Safn þetta er á neðstu hæðinni í Menningarhúsinu og við hliðina á safninu er hinn vinsæli humarstaður Við Fjöruborðið. Á efri hæðinni er að finna Draugasetrið fræga en þetta nýja safn er í eigu sömu aðila og hannað og unnið af sömu aðilum og stóðu að því safni.

Óhætt er að segja að safn þetta eigi sér ekki nokkra hliðstæðu hér á landi. Gestir safnsins ganga inn í heim álfa og huldufólks og skyggnast inn í þeirra líf. Einnig fara þeir í gegnum stóran tröllahelli og sjá heimkynni þeirra með eigin augum. Líklegt er þó að mörgum finnist hápunkturinn vera heimsókn í 200 fermetra rými þar sem er um 5-10 stiga frost. Þar er sannkallað vetrarríki, ísklumpar úr Vatnajökli, ísveggir og ísbar í einu horninu. Hápunkturinn er þó líklega Norðurljósin sem þarna eru sýnd í allri sinni dýrð.

Að lokum koma gestir safnsins í um 200 fermetra minjagripaverslun þar sem hægt er að fá ýmsan varning sem tengist álfum, tröllum, draugum og norðurljósum auk annara hluta líkt og ullarvara sem unnar eru af álfum og eða huldufólki.

Í tengslum við Draugasetrið og þetta nýja safn er boðið upp á dags og kvöldferðir frá Reykjavík þar sem aðalþema ferðarinnar eru álfar, tröll, draugar og norðurljós. Einnig er hægt að fara vikuferð um helstu náttúrperlur á Suðurlandi þar sem þetta þema er ríkjandi auk þess sem boðið verður upp á hestasýningar og skyggnst verður inní daglegt líf bænda og annara íslendinga.

Senda póst Íslenska English Deutsch Icelandic Wonders